Hesturinn er meistararverk.

15.01.2012 18:30:56 / kvistur

Kvistur

Jæja eins og margir hverjir hafa tekið eftir þá er ég búin að eyða öllu gömlu bloggi. Ætli það hafi ekki eitthvað með nýja árið að gera? Ný byrjun, eins og einhverjir vilja kalla það.

En hvað um það. Ég er nú á loka önninni í skólanum. Skólinn er tímafrekur og er ég í skólanum langt framan af degi á hverjum degi nema föstudegi(12:45)! Er í vinnu aðra hverja helgi og frí helgarnar þá er ég annað hvort í sveitinni eða þá að læra af krafti. Ég fer alltaf niðrí hesthús eftir skóla og þjálfa Kvist, en ég mun vera með Álfasteins son í þjálfun í vetur. Spennandi vetur fram undan. 

Kvistur minn er að verða að svakalega flottum reiðhesti. En hann er komin með töltið á fína braut en jafnvægið er enn þó nokkuð að koma til. Hann virðist ætla að lyfta ágætlega á töltinu :) Stökkið er líka að verða alveg frábært og brokkið er að koma til eftir að hafa verið týnt í 5 mánuði! En Kvistur er loks að breytast svona þar sem ég hef virkilega verið að þjálfa hestinn í vetur. Það segir mikið um hvort maður er að þjálfa eða bara að ríða út sér til gamans! Kvistur er bara allt annar hestur :)

Nokkrar myndir frá deginum í dag.





- Steinunn Reynis

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2012 21:01:25 / kvistur

Afhverju eru einhverjir dagar verri en aðrir?

Hæ!

Dagurinn var frábær, en kvöldið hræðilegt, Kvistur rauk næstum á önnur hross í reiðhöllinni, og lét eitthvað heimskulega. Annars þá var hann svo góður á leiðinni heim! Ég held að ég hætti að æfa stökk úr kyrrstöðu, kannski þess vegna að hann er að láta svona asnalega. Annars þá hefur sú æfing losað hann svakalega, sérstaklega uppá vinstri hliðina að gera! Kvistur er samt allaf bestur þótt að hann sé smá þrjóskur. Síðan var annar klár sem ég er að þjálfa, hann var bara algjör pain in the ass í dag.. hoppaði tvisvar úti skalf að ástæðulausu, kannski er hann með ofurheyrn og heyrir í flugeldum úr meira en tug kílómetra fjarlægð? Hvað veit ég, þessir hestar eru jú ekki eins og við mennirnir.

Mig langaði líka að segja ykkur frá einu hrossi sem ég fór á fyrr í dag. En ég hef  farið á það nokkrum sinnum og alltaf verið eitthvað sem hægt var að bæta og laga, sérstaklega smá bindingur. En vá í dag, hrossið var alveg meiri háttar. Yndislegt alveg hreint út sagt. Ég bara gat ekki verið ánægðari með hross en þetta.. Hrossið var alveg fullkomið í dag, og nei ég segi þetta örsjaldan, næstum aldrei! hehe :)

Allavegna, ég vona að ég sé að verða betri knapi svo maður kannski reyni að fara að keppa eitthvað af viti! :) Er búin að tryggja mér einhverja hjálp frá góðum vinum mínum til þess að taka mig í einhverja kennslu í vetur.. Ég þarf spark í rassinn ef ég á að geta eitthvað af viti í keppnum að minnsta kosti! 

PS ég stefni á það að eyða öllu af þessari síðu von bráðar(Þegar ég nenni að leggjast fyrir framan tölvuna í einhverja klukkutíma til þess að gera það, svo mikið hérna inná, sérstaklega blogg! )

- Steinunn Reynis


» 0 hafa sagt sína skoðun


Könnun
LM hestamanna í rvk 2012?


Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 120474